Finndu gallana í útboðsgögnum áður en þeir kosta milljónir.
Verkgreinir lágmarkar handavinnu við rýni útboðsgagna. Með gervigreind dregur kerfið fram misræmi á sekúndum sem annars gæti tekið klukkustundir að finna.


Handvirk rýni er dýr og áhættusöm.
Tímasóun
Sérfræðingar eyða dýrmætum tíma í að fletta á milli skjala í stað þess að einbeita sér að gæðum.
Skortur á yfirsýn
Erfitt er að halda utan um breytingar og tryggja að nýjustu gögn séu alltaf í samræmi.
Mannleg mistök
Það er nánast ómögulegt að tryggja 100% samræmi í flóknum verkefnum með handvirkum aðferðum.
Dýr eftirmál
Misræmi sem uppgötvast seint getur leitt til tafa, aukakostnaðar og deilna.
Skilvirkari rýni með gervigreind.

Betri yfirsýn
Verkgreinir les hundruð blaðsíðna af útboðsgögnum og dregur fram það mikilvægasta. Gervigreindin léttir undir við að ná yfir mikið magn upplýsinga sem mannfólki reynist erfitt að rýna af nákvæmni.

Stuðningur við samræmingu
Kerfið hjálpar þér að finna ósamræmi, copy-paste villur og atriði sem vantar í tilboðsskrár – atriði sem annars gætu valdið misskilningi og dýrum aukakostnaði.

Leit að nál í heystakki
Gæðatrygging er bókstaflega leit að nál í heystakki. Verkgreinir gerir rýni markvissari með því að flagga hugsanlegum villum sem auðvelt er að yfirsjá í stórum verkefnum.
Ertu tilbúin(n) að fækka villum?
Vertu með í hóp framsækinna fyrirtækja í mannvirkjagerð sem nota Verkgreinir til að tryggja gæði sinna útboða.
Óska eftir boði