Lög og gögn

Notendaskilmálar

Síðast uppfært: 15. apríl 2026

1. Almennt

Þessi notendaskilmálar gilda um notkun á Verkgreinir, hugbúnaðarlausn (SaaS) sem veitir aðstoð við rýni útboðsgagna með hjálp gervigreindar. Þjónustan er rekin af Mynstra ráðgjöf ehf. (kt. 491224-0960), hér eftir „Verkgreinir“ eða „við“.

Með því að nota þjónustuna samþykkir þú þessa skilmála fyrir hönd þess fyrirtækis eða lögaðila sem þú kemur fram fyrir (hér eftir „notandi“ eða „viðskiptavinur“). Ef þú hefur ekki heimild til að binda þann aðila má ekki nota þjónustuna.

2. Þjónustan og takmarkanir hennar

Verkgreinir er hannaður sem stuðningstæki til að létta undir við rýni og samræmingu útboðsgagna. Notandi gerir sér grein fyrir og samþykkir að:

  • Gervigreindin er ekki óskeikul og getur yfirséð villur eða gefið rangar vísbendingar.
  • Verkgreinir ábyrgist ekki að kerfið finni allar villur eða misræmi í gögnum.
  • Notandi ber fulla ábyrgð á lokaútgáfu gagna og ákvörðunum sem teknar eru byggðar á niðurstöðum kerfisins.
  • Þjónustan er veitt „í þeirri mynd sem hún er“ (as-is). Enginn formlegur þjónustustaðall (SLA) fylgir grunnáskrift. Fyrir formlegt SLA þarf sérsamning.

3. Aðgangur og öryggi

Notandi ber ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru undir hans aðgangi. Óheimilt er að deila aðgangi með þriðja aðila án skriflegs samþykkis okkar. Notandi skal tilkynna okkur tafarlaust ef grunur vaknar um misnotkun eða óleyfilegan aðgang.

Notandi má ekki reyna að brjótast inn í þjónustuna, keyra álagspróf án leyfis, afrita efni óeðlilega, eða nota þjónustuna til að vinna úr ólöglegu efni eða dreifa illvirkum hugbúnaði.

4. Verðskrá og greiðslur

Áskrift er mánaðarleg og innheimt fyrirfram í gegnum íslenska greiðsluþjónustu Payday. Gildandi verðskrá er birt á vef Verkgreinir og getur breyst með fyrirvara.

Verðbreytingar eru tilkynntar að minnsta kosti 30 dögum áður en þær taka gildi. Ef notandi samþykkir ekki verðbreytingu má segja upp áskriftinni í samræmi við 5. kafla áður en breytingin tekur gildi.

Ef greiðsla berst ekki á gjalddaga áskiljum við okkur rétt til að takmarka aðgang að þjónustunni þar til skuldin er greidd, með hæfilegum fyrirvara til notanda.

5. Uppsögn og gagnaútflutningur

Notandi getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er í stillingum vinnustaðar. Þjónustan heldur áfram til loka núverandi greiðslutímabils og er ekki endurgreidd hlutfallslega.

Eftir uppsögn hefur notandi 30 daga til að sækja verkefnagögn sín. Að þeim tíma liðnum eru gögn eytt úr virku kerfi í samræmi við persónuverndarstefnu okkar. Bókhaldsskjöl eru geymd í sjö ár samkvæmt íslenskum lögum.

Við áskiljum okkur rétt til að loka aðgangi notanda sem brýtur gegn þessum skilmálum, með fyrirvara um eðlilega tilkynningu ef aðstæður leyfa.

6. Hugverkaréttur og eignarhald gagna

Notandi á öll réttindi yfir þeim gögnum sem hlaðið er upp í kerfið, þar með talin útboðsgögn, verklýsingar og niðurstöður greininga. Verkgreinir aflar sér aðeins þess takmarkaða notkunarleyfis sem nauðsynlegt er til að veita þjónustuna fyrir notandann.

Skjalainnihald og greiningarniðurstöður eru aðeins notuð til að veita, reka og bæta þjónustuna fyrir notandann. Þau eru ekki notuð af hálfu Verkgreinis til að þjálfa eigin gervigreindarmódel. Ef við notum utanaðkomandi gervigreindar- eða vinnsluþjónustur veljum við aðeins vinnslufyrirkomulag og samningsskilmála sem heimila ekki notkun slíks innihalds til almennrar módelþjálfunar. Samanteknar, ópersónugreinanlegar rekstrartölur (t.d. fjöldi greininga og algeng villumynstur á samanteknu formi) geta þó verið notaðar til að bæta þjónustuna.

Hugbúnaðurinn, viðmót og tengd hugverk Verkgreinir eru eign Mynstra ráðgjöf ehf. og njóta verndar höfundaréttar.

7. Vinnsla persónuupplýsinga

Vinnsla persónuupplýsinga í þjónustunni er lýst í persónuverndarstefnu okkar, sem er hluti af þessum skilmálum. Fyrir viðskiptavini sem þurfa formlegt Data Processing Agreement (DPA) samkvæmt gr. 28 GDPR, hafið samband við personuvernd@verkgreinir.is.

8. Þagnarskylda

Báðir aðilar skulu gæta þagnar um trúnaðarupplýsingar hins aðilans sem þeim verða kunnar við notkun og rekstur þjónustunnar. Þagnarskylda stendur meðan áskrift er virk og í þrjú ár eftir uppsögn.

9. Takmörkun á skaðabótaábyrgð

Að því marki sem lög leyfa, verður Verkgreinir í engum tilfellum ábyrgt fyrir óbeinu tjóni, rekstrartapi, missi viðskipta eða aukakostnaði sem kann að hljótast af notkun eða bilun í þjónustunni, þar með talið villum í útboðsgögnum sem kerfið flaggaði ekki.

Heildarábyrgð Verkgreinir, óháð kröfugrundvelli, skal aldrei vera hærri en sem nemur þeirri fjárhæð sem notandi hefur greitt fyrir þjónustuna síðustu tólf mánuði áður en krafan varð til.

10. Óviðráðanleg atvik (force majeure)

Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefnd eða töfum sem rekja má til óviðráðanlegra atvika, svo sem náttúruhamfara, stríðs, verkfalla, alvarlegrar truflunar á internetinu, eða bilana hjá grundvallarþjónustuveitendum.

11. Breytingar á skilmálum

Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra þessa skilmála. Verulegar breytingar verða tilkynntar með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara í gegnum þjónustuna eða með tölvupósti. Áframhaldandi notkun eftir að breytingar taka gildi telst samþykki á uppfærðum skilmálum.

12. Lögsaga og ágreiningsmál

Um þessa skilmála og samband aðila gilda íslensk lög. Ágreiningur sem kann að rísa milli aðila skal leystur fyrst og fremst með samningaviðræðum í góðri trú. Ef ekki næst sátt skal ágreiningurinn leystur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

13. Hafið samband

Fyrir almennar fyrirspurnir, hafið samband við okkur á hjortur@mynstra.is. Fyrir persónuverndarbeiðnir má nota personuvernd@verkgreinir.is.